Viking Gylltur

Bjór
Framleiðandi: Vífilfell Víking
Vol (%): 5,60
Magn (ml): 330
Land: Ísland
Söluflokkur ÁTVR
Gott með

Víking Gylltur
Víking Gylltur er margverðlaunaður gæðabjór. Bjórinn hlaut fyrst gullverðlaun alþjólegu gæðastofnunarinnar Monde Selection árið 1992 og síðan aftur árin 2002 og 2003. Gullverðlaunin sem Víking Gylltur fékk árin 2002 og 2003 eru staðfesting á gæðum bjórsins og sýna það og sanna, svo ekki verður um villst, að hann stenst fyllilega samanburð við bestu bjóra í heimi og gott betur. Undanfarin ár hefur Víking Gylltur verið vinsælasti bjór á Íslandi með helmingi meiri hlutdeild en næsti bjór.

Víking Gylltur er í flokki sterkra lagerbjóra með 5,6% alkahólmagn. Í hann er notað nokkuð mikið af humlum sem gefa bjórnum áberandi biturleika sem einmitt er mjög eftirsóttur af vönum bjóráhugamönnum. Í hann er notaður maís og sykur sem gerir hann minna saðsaman en jafnframt meira frískandi. Þetta er gullinn úrvalsbjór sem sækir fyrirmynd sína til evrópskra Pilsen bjóra.
Fáanlegur í:
330 ml glerflösku
330 ml áldós
500 ml áldós




Listalýsing