Glen Carlou Grand Classique
Rauðvín
Framleiðandi:
Glen Carlou
Ár:
2006
Þrúga:
Blanda
Vol (%):
14,50
Magn (ml):
750
Land:
Suður Afríka
Svæði:
Paarl
|
Gott með
|
Blámygluostar
|
Alifuglar
|
Nautakjöt
|
Lambakjöt
|
Súkkulaði
|
Eitt og Sér
|
|
Þetta er stórkostlegt og höfugt vín. Litur þess er djúprauður og tær. Angan vínsins einkennist af sólberjum og rauðri eik. Sólberin koma greinilega fram í bragði vínsins og þar má einnig finna fyrir svörtum hindberjum. Í víninu er gott jafnvægi milli tannin og ávaxta. Það helgast af því að fyrstu tvö árin er vínið geymt í nýjum frönskum eikartunnum áður en það er flutt í eldri tunnur, sem gefur víninu bragð af þroskuðum ávöxtum og örlítilli vanillu. Vínið er gert úr týpiskri franskri blöndu, þannig að flóknara verður það vart. Þetta er vín sem getur gengið með dökku kjöti eins og nauti eða villibráð og þurfa sósur að vera mjög bragðmiklar. Vínið er frekar þungt og mikið og þarf því að anda tölvert til að ná mýktini fram. Með mjúkostum í rómantísku andrúmslofti er þetta vínið.
Listalýsing
Sólber og rauð eik, vínið er afar vel gert með franskri uppskrift.