Glen Carlou Shirah

vín
Rauðvín
Framleiðandi: Glen Carlou
Ár: 0
Þrúga: Shiraz
Vol (%): 14,50
Magn (ml): 750
Land: Suður Afríka
Svæði: Paarl
Söluflokkur ÁTVR
Kjarni
Gott með
Blámygluostar
Nautakjöt
Súkkulaði
Eitt og Sér

Þetta er eitt besta nýjaheimsvínið á markaðnum um þessar mundir.  Guðdómlegt vín sem hefur unnið til fjölda verðlauna eins og önnur vín frá Glen Carlou, enda er varla hægt að fletta víntímaritum án þess að þar sé minnst á þessi frábæru vín.  Vínið er purpurarautt að lit og ilmar af brenndri eik og dökkum berjum.  Vínið gefur langt og margslungið bragð sem einkennist af myntu og súkkulaði.  Í eftirbragði vottar fyrir bragði af vanillu og brenni.  Í lokin kemur fram gott marsipanbragð.  Vínið er geymt í eikartunnum úr 50 % nýrri eik.  Þessvegna er vínið tilbúið til neyslu, þótt það þoli geymslu í 10 – 15 ár.  Vínið hentar vel með öllum bragðmiklum og pipruðum mat og nýtur sýn einning vel með öllum grillmat.  Súkkulaðitertur er frábær kostur með þessu víni.


Listalýsing


Dökk rautt, anísfræ, dökkt súkkulaði og sólber í angan með jurta te tónum, flókið og magnað í munni með þroskuðum berjum, kryddaðri eik og pipar.
Dark red with anisseed, dark chocolate and black currants with herbal te notes, rich and complex flavors of ripe berries, with hint of spicy oak and pepper.