Grappa er framleitt með því að eima vínberja hratið þegar búið er að taka vökvann frá sem nota á í víngerðina. Þetta er aðferð sem á sér rætur að rekja til 16. aldar og hefur þróast í takt við tímann. Upprunalega var þetta frekar hrár og ruddalegur vökvi en í dag er hann mun mildari og auðdrekkanlegri, í sumum tilfellum er vökvinn látinn þroskast á eikartunnum sem gefur honum gylltan blæ og mildara bragð. Algeingasta eymingar aðferðin eru litlir kopar katlar og aðferð sem heitir "bain-marie" eða óregluleg uppgufun. Útkoman ræðst svo af því hrati sem notað er t.d. ef tekið er hrat eftir Barolo þá eru það nebbiolo þrúgurnar sem hafa verið notaðar og grappa fær bragð samkvæmt því. Okkar Grappa er hinsvegar búið til úr hrati af Chardonnay þrúgunum.
Grappa er í sjálfu sér alltaf hægt að drekka og þá kannski helst með góðum espresso bolla en það er mjög hentugt og gott eftir matinn þar sem það hefur þá eiginleika að setja meltinguna í gang svo að maturinn hjaðnar aðeins í maganum. Má segja að Grappa sé koníak Ítala.